Persónuvernd og skilmálar
ClinchGrid notar engar vafrakökur og vistar ekkert á tækinu þínu. Við fylgjumst ekki með þér á öðrum vefsíðum og seljum hvorki né deilum upplýsingum um þig.
Hver rekur síðuna
ClinchGrid er einkaverkefni, rekið á Íslandi án hagnaðarsjónarmiða. Spurningar og beiðnir sendast á 204@204.is.
Heimsóknatölur
Við teljum síðuflettingar með Vercel Web Analytics. Það notar engar vafrakökur og vistar ekkert á tækinu þínu. Vercel býr til tímabundið auðkenni út frá beiðninni, meðal annars IP-tölu og vafra, og eyðir því eftir 24 klukkustundir. Skráð er síðan sem var skoðuð, hvaðan heimsóknin kom, áætluð staðsetning og tegund tækis. Við sjáum aðeins samtölur.
Hýsing
Síðan er hýst hjá Vercel Inc. Eins og hjá öllum vefsíðum fara tæknileg gögn á borð við IP-tölu og vafra um netþjóna þeirra þegar síða er sótt. Vercel vinnur gögnin fyrir okkar hönd samkvæmt vinnslusamningi. Þau geta verið unnin í Bandaríkjunum með viðeigandi verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsákvæðum. Netþjónaskrár eru geymdar í mesta lagi 30 daga og samtölur um heimsóknir á meðan síðan er í rekstri.
Við erum ekki með aðganga, eyðublöð, auglýsingar eða rekjara frá þriðja aðila. Leturgerðir koma af okkar eigin léni og vafrinn þinn hefur aldrei beint samband við Polymarket eða gagnaveituna.
Lagagrundvöllur og réttindi
Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að reka síðuna og bæta hana (f-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679, sbr. lög nr. 90/2018).
Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu og takmörkun vinnslu, og getur andmælt vinnslunni. Sendu línu á 204@204.is. Við geymum ekkert sem auðkennir þig, svo yfirleitt er ekkert að finna. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar á personuvernd.is.
Skilmálar
ClinchGrid er ókeypis og óopinbert og tengist hvorki Formula 1-fyrirtækjunum, FIA, keppnisliðum né Polymarket. F1, FORMULA ONE, FORMULA 1, FIA FORMULA ONE WORLD CHAMPIONSHIP, GRAND PRIX og tengd merki eru vörumerki Formula One Licensing B.V.
Keppnisgögn eru frá Jolpica F1 og þátttakendum þess, með leyfi CC BY-NC-SA 4.0, og ClinchGrid hefur síað þau og endurmótað. Líkur á titlinum eru okkar eigin hermun. Markaðsverð koma frá Polymarket og eru birt til upplýsinga. Ekkert hér er ráðgjöf um veðmál eða fjármál.
Við reynum að hafa allt rétt en getum ekki ábyrgst það. Notkun síðunnar er á eigin ábyrgð.
Síðast uppfært 15. september 2026.